Áhrifavaldur
Áhrifavaldur vinnur að markaðssetningu á samfélagsmiðlum
Blómaskreytir
Blómaskreytir útbýr skreytingar og selur blóm og gjafavöru
Búningagerðarmaður
Búningagerðarmaður sníðir og saumar búninga út frá hugmyndum búningahönnuðar
Búningahönnuður
Búningahönnuður hannar búninga fyrir svið, kvikmyndir og sjónvarp
Einkaþjálfari
Einkaþjálfari skipuleggur æfingar og stýrir þjálfun einstaklinga eða hópa
Fatahönnuður
Fatahönnuður hannar föt og fylgihluti
Fatatæknir
Fatatæknir vinnur við fatagerð og saumaskap og veitir ýmsa þjónustu tengda fatnaði og tísku
Förðunarmeistari
Förðunarmeistari farðar þá sem koma fram í sjónvarpi eða fyrir framan aðra áhorfendur
Gull- og silfursmiður
Gull- og silfursmiður hannar, smíðar og gerir við skartgripi úr gulli og silfri
Hársnyrtir
Hársnyrtir klippir, litar og mótar hár og gefur ráð um hárhirðu
Innanhúsarkitekt
Innanhúsarkitekt vinnur við ýmis konar innanhúshönnun
Klæðskeri
Klæðskeri sérsaumar herrafatnað og veitir viðeigandi ráðgjöf
Kvikari
Kvikari glæðir persónur í teiknimyndum lífi
Leikmyndahönnuður
Leikmyndahönnuður hannar leikmynd fyrir svið, kvikmyndir, sjónvarp og fleira
Ljósahönnuður
Ljósahönnuður hannar lýsingu á sviði, í sjónvarpi eða kvikmyndum
Snyrtifræðingur
Snyrtifræðingur snyrtir, farðar og sinnir ráðgjöf og fræðslu
Vöruþróunarstjóri
Vöruþróunarstjóri þróar vörur og þjónustu fyrirtækis