Bifvélavirkjun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við greiningu og viðgerðir bilana í helstu gerðum ökutækja. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Bifvélavirkjun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú og hálft ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skólanna.
Nám í bifvélavirkjun hefur að hluta til verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Bifvélavirkjun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Fyrsta árið sameiginlegt grunnnám bíliðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í bifvélavirkjun. Nemandi gerir námssamning við iðnmeistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.
Kennsla
Bifvélavirkjun hefur verið kennd í Borgarholtsskóla, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Grunnnám bíl-, málm og véliðngreina hefur verið kennt hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tækniskólanum.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám