Bílamálun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að auka þekkingu og færni við meðhöndlun efna og málun ökutækja. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Bílamálun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skólans.
Nám í bílamálun er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.
Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Bílamálun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun.
Fyrsta árið er sameiginlegt grunnnám bíliðgreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í bílamálun
Ekki er hægt að hefja nám til sveinsprófs í bílamálun nema hafa lokið grunnnáminu eða hliðstæðu námi sem skólinn metur
Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin mun fara fram
Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.
Kennsla
Nám í bílamálun hefur verið kennt við Borgarholtsskóla.
Grunnnám bíliðngreina hefur einnig verið kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám