Húsasmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því felst meðal annars að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að sinna smíðavinnu í bygginga- og mannvirkjaiðnaði; verkstæðis- og innréttingavinnu, úti- og innivinnu ásamt viðgerða- og breytingavinnu. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Húsasmíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.
Nám í húsasmíði hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Húsasmíði skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi. Fyrstu önnina er farið í sameiginlegt einnar annar grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur boðið upp á húsasmíðanám með vinnu en sú krafa gerð að umsækjandi hafi náð 23 ára aldri og nokkra starfsreynslu.
Kennsla
Húsasmíði hefur verið kennd við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, Menntaskólann á Ísafirði, Tækniskólann, Verkmenntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskóla Austurlands.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða byggingariðnfræði.
Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám