Málaraiðn er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því felst að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við alla algenga verkþætti, allt frá mati á ástandi flatar og þar til æskilegri lokaáferð er náð. Einnig að útfæra ýmsa sérhæfða verkþætti eins og sandspörtlun bygginga, skrautmálun, skiltagerð og útfærslur á eldra handverki svo sem málun marmara- og viðarlíkinga.
Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna. Málaraiðn er löggilt iðngrein.
Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.
Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Málaranám skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.
Fyrstu önnina er farið í sameiginlegt einnar annar grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.
Kennsla
Málaraiðn er kennd við Tækniskólann - skóla atvinnulífsins og hefur áður verið í boði við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina hefur einnig verið kennt í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands og Verkmenntaskóla Austurlands.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða byggingariðnfræði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám