Vöruflutninganám er starfstengt og á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka færni og þekkingu á flutningafræðum, flutningaferli, markaðs- og sölumálum. Eins er farið í þætti líkt og námstækni, íslensku, ritvinnslu, tölvu- og upplýsingatækni og vörumeðferð. Námið er 226 klukkustundir að meðtalinni 32 klukkustunda vinnustaðanámi. Meta má námið til styttingar námi í framhaldsskóla til allt að 24 eininga en það er kennt innan framhaldsfræðslunnar.
Fáðu frekari upplýsingar hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum.
Kröfur
Námið er ætlað starfsfólki sem annast flutninga og geymslu varnings.
Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Farið er í ýmsar greinar til að auka þekkingu og skilning á starfi og starfsumhverfi í vöruflutningum. Til að sjá betur hvernig námið er uppbyggt má nálgast námskrá þess hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Kennsla
Námið er innan framhaldsfræðslunnar. Fáðu nánari upplýsingar hjá þinni fræðslu- og símenntunarstöð.
Að loknu námi
Námið veitir meiri þekkingu og yfirsýn, þeim sem starfa við vöruflutninga og geymslu varnings.
Tengt nám