Störf áhrifavalda snúnast um markaðssetningu fyrir hönd ýmissa auglýsenda. Starfsheitið er nýlegt og er haft um þau sem fá greitt fyrir að vekja athygli á ákveðinni vöru, fyrirtækjum eða þjónustu fyrir milligöngu samfélagsmiðla.
Um getur verið að ræða markaðssetningu fyrir mismunandi auglýsendur í atvinnugreinum sem gjarnan tengjast tísku, lífsstíl eða ferðalögum. Áhrifavaldar eru eins konar milliliður á milli auglýsenda og þeirra sem hugmyndin er að ná til.
Áhrifavaldar safna gjarna til sín töluverðum fjölda fylgjenda í gegnum bloggsíður, YouTube eða miðla á borð við Facebook, Instagram og TikTok. Í störfum sínum þurfa áhrifavaldar að fylgja reglum Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar.
Áhrifavaldar starfa ekki beint hjá einhverjum einum heldur vinna sjálfstætt, oft í gegnum tímabundna samninga við nokkur mismunandi fyrirtæki á sama tíma eða í tengslum við einstaka vörumerki.
Helstu verkefni
- útbúa og birta efni fyrir hönd auglýsenda
- taka myndir, setja saman myndbönd og skrifa umsagnir
- markaðssetning á vörum og sjálfum sér sem vörumerki
- viðhalda og fjölga fylgjendum á samfélagsmiðlum
- finna, sinna og halda sambandi við viðskiptavini
- sækja viðburði og fjölmiðlaumfjöllun
Hæfnikröfur
Í starfi sem áhrifavaldur þarf að búa yfir ákveðni, framtakssemi, einbeitni og söluhæfileikum ásamt því að geta byggt upp traust og eiga auðvelt að komast í samband við fólk og vinna með því. Vinnan felst í að hafa áhrif á viðhorf og gjörðir annarra. Því þarf að hafa þekkingu á notkun samfélagsmiða sem og þeirri vöru og auglýsanda sem unnið er með hverju sinni.
Byggt á: Utdanning.no - Influencer
Tengd störf