Félagsráðgjafar aðstoða fjölskyldur, einstaklinga og hópa við að bæta félagslega stöðu sína. Starfið felst að miklu leyti í ráðgjöf, upplýsingagjöf og stuðningi auk þess að vinna að nýjum félagslegum úrræðum í félags- eða heilbrigðiskerfi. Félagsráðgjafi er lögverndað starfsheiti.
Félagsráðgjafar vinna gjarnan í samstarfi við stofnanir og sérfræðinga í félags- og heilbrigðisþjónustu. Margir sérhæfa sig í greinum á borð við öldrunarþjónustu, barnavernd, meðferð áfengis- og vímuefnaneytenda, meðferð á sjúkrahúsum, fjölskyldumeðferð og málefni fatlaðra.
Helstu verkefni
- kynna sér aðstæður og þarfir skjólstæðings
- leita réttar til félagslegrar aðstoðar
- gera áætlanir sem miða að því að bæta aðstæður fólks
- vinna að félagslegri endurhæfingu
- leita úrræða um vistun fyrir börn, aldraða eða fatlaða
- veita stuðningsviðtöl eða meðferð
- skipuleggja og stjórna hópstarfi
Hæfnikröfur
Starfsleyfi félagsráðgjafa er gefið út af landlækni til þeirra sem lokið hafa meistaranámi úr háskóla í greininni. Sem félagsráðgjafi þarftu að geta borið ábyrgð á þeirri ráðgjöf, meðferð og forvörnum sem beitt er í starfi en þekkja einnig faglegar takmarkanir.
Félagsráðgjafafélag Íslands
Námið
Félagsráðgjöf er kennd við Háskóla Íslands og er BA í félagsráðgjöf þriggja ára nám.
Til að geta sótt um löggild starfsréttindi þarf einnig að ljúka tveggja ára meistaranámi.
Tengd störf