Fornfræðingar stunda rannsóknir á menningu Forngrikkja og Rómverja; sögu þeirra, bókmenntum og heimspeki. Fornfræði (eða klassísk fræði) tengjast hinum ýmsu greinum hugvísinda út frá kunnáttu í fornmálunum tveimur, forngrísku og latínu.
Fornfræði er mjög tengd greinum á borð við sagnfræði, heimspeki, bókmenntasögu og málvísindi og skilin óljós á milli klassískrar textafræði og fornfræði. Fornfræðingar starfa gjarnan við kennslu eða rannsóknir. Mögulegur starfsvettvangur gæti einnig verið staðir á borð við söfn, opinberar stofnanir eða bókaútgáfur.
Helstu verkefni
- kennsla og rannsóknir
- þýðingar
- ritstörf og útgáfa
Hæfnikröfur
Þekking á forngrísku og latínu er ákveðin forsenda þess að geta starfað sem fornfræðingur og háskólapróf æskilegt í þeim tungumálum, klassískum fræðum eða tengdum greinum.
Um starfið á Vísindavef H.Í.
Námið
Klassík fræði eru kennd við Háskóla Íslands, sem aukagrein til BA-gráðu.
Námið samanstendur af námskeiðum sem kennd eru á Hugvísindasviði, innan heimspeki, sagnfræði, grísku, latínu og bókmenntafræði.
Tengd störf