Heimastuðningur aðstoðar við heimilishald, þrif, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu og fleiri hversdagslega hluti sem fólk ræður ekki við sjálft vegna aldurs, veikinda eða einhvers konar sérþarfa. Markmið heimastuðnings er að gera fólki kleift að búa á eigin heimili þrátt fyrir að geta ekki bjargað sér fullkomlega sjálft.
Starf við heimastuðning er oftast vaktavinna sem fram fer á heimilum fólks en á vegum sveitarfélags eða sjálfstæðra fyrirtækja.
Helstu verkefni
- þrif og þvottar
- innkaup og matseld
- ýmis persónuleg aðstoð s.s. vegna hreinlætis eða klæðnaðar
Hæfnikröfur
Starfsfólk í heimastuðningi þarf að eiga gott með að umgangast annað fólk, geta sýnt samkennd og væntumþykju en bera einnig fulla virðingu fyrir skjólstæðingum. Nauðsynlegt er að geta unnið hvort tveggja sjálfstætt og með öðrum.
Byggt á Utdanning.no - Hjemmehjelp
Tengd störf