Leikmyndasmiðir smíða leikmyndir byggðar á vinnuteikningum leikmyndahönnuða. Starfið byggist mikið á því að í flestum tilvikum er ekki verið að smíða hluti til alvöru notkunar heldur sem hluta leikmyndar og leikverks. Mikið er unnið úr tré en einnig smíðað úr efnum á borð við plast, pappa og járn.
Leikmyndasmiður getur unnið í leikhúsum, við sjónvarps- eða kvikmyndagerð.
Helstu verkefni
- vinna eftir teikningum og fyrirmælum leikmyndahönnuðar
- smíða veggi, stiga, hillur og jafnvel heilu húsin
- pússa, fræsa og búa til áferð sem óskað er eftir
- breyta og laga leikmynd eftir þörfum
Hæfnikröfur
Leikmyndasmiðir þurfa að geta lesið úr vinnuteikningum og hafa gott almennt verkvit. Æskilegt er að geta hugsað í lausnum og sýnt þolinmæði við vinnuna. Leikmyndasmiður notar margskonar tæki og tól til smíða á borð við hamar, borvél og fræsara.
Bandalag íslenskra listamanna
Tengd störf