Starfsfólk í landbúnaði vinnur almenn landbúnaðarstörf svo sem í búfjárrækt og jarðrækt.
Helstu verkefni
- hirða búfé inni og úti
- uppgræðsla á landi
- aðstoð við sauðburð, sauðfjárrekstur og smölun
- halda útihúsum hreinum og sinna viðhaldi
- vinna við heyskap
- áburðardreifing
- viðhald á girðingum
- aðstoð við viðhald á vélum
Hæfnikröfur
Starfsmaður í landbúnaði þarf að þekkja til umhverfis landbúnaðar svo sem hvað varðar jarðrækt, vélanotkun og hirðingu og heilbrigði dýra. Mikilvægt er að gæta vel að umhverfis- og öryggismálum.
Námið
Ekki er gerð formleg krafa um menntun en margvísleg starfstengd námskeið kunna að vera í boði auk náms við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Tengd störf