Veðurfræðingar afla gagna um veður, vinna úr þeim og veita upplýsingar um veður með veðurspám eða gera rannsóknir á veðurfari.
Flestir veðurfræðingar starfa á veðurstofum eða á rannsóknarstofum, stundum í tengslum í vettvangsrannsóknir utanhúss. Einnig geta veðurfræðingar sérhæft sig í tölvuvinnslu, fjarskiptum vegna veðurþjónustu, snjóflóða- og hafíssrannsóknum eða veðurfræðilegum rannsóknum sem miða að endurbótum á veðurspám.
Helstu verkefni
- gerð veðurspár og miðlun upplýsinga um veður
- semja almennar veðurspár fyrir landið og miðin
- fylgjast með veðri og gefa út viðvaranir ef þurfa þykir
- gerð tölvulíkana til að spá fyrir um veður
- veita fjölmiðlum upplýsingar um veður eða greina þar frá veðri og veðurhorfum
Hæfnikröfur
Veðurfræðingur þarf að hafa góða greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu talna og gagna. Góð tölvufærni er nauðsynleg sem og hæfni til að leysa vandamál. Mikilvægt er að hafa áhuga á vísindum, umhverfi og náttúru landsins og geta starfað í teymi. Góð samskiptafærni í ræðu og riti er einnig mjög æskileg.
Veðurfræðifélagið
Námið
Háskólanám í raungreinum á borð við eðlisfræði og stærðfræði er algengasti grunnur veðurfræðinga sem þurfa að öðru leyti að sækja nám sitt í erlenda háskóla.
Tengd störf