Vélstjórar reka og viðhalda vélbúnaði um borð í skipum og bera ábyrgð á öruggum, skilvirkum og hagkvæmum rekstri búnaðarins. Í starfinu felst að sjá um rekstur, eftirlit, prófanir, viðhald og viðgerðir á vél- og rafbúnaði, stýrikerfum og hjálparbúnaði. Viðfangsefni vélstjóra eru breytileg eftir réttindastigi þeirra og stærð og hlutverki skipa. Vélstjóri er löggilt starfsheiti.
Vélstjórar starfa á fiskveiði-, flutninga- og farþegaskipum, í orkuverum, virkjunum og annars staðar þar sem gerðar eru kröfum um víðtæka þekkingu á vél- og tæknibúnaði. Einnig getur verið um að ræða sölustörf hjá fyrirtækjum sem flytja inn eða framleiða vélar og vélbúnað.
Réttindastig vélstjóra eru fjögur:
A – réttindi ná til skipa með allt að 750 kW framdrifsafl
B – réttindi ná til skipa með allt að 1500 kW framdrifsafl
C – réttindi ná til skipa með 750 til 3000 kW framdrifsafl
D – réttindi eru ótakmörkuð
Helstu verkefni
- stjórnun og rekstur vél-, raf- og hjálparbúnaðar
- bregðast við bilunum í vél- og rafbúnaði
- sjá til þess að rekstur búnaðar uppfylli kröfur um öryggi og mengunarvarnir
- ábyrgð á skipulagi og verkefnum vélstjórnarvaktar og þjálfun undirmanna
- sjá til þess að um borð sé viðhlítandi lager varahluta
Hæfnikröfur
Vélstjóri þarf að hafa þekkingu og færni í samræmi við réttindastig þar sem stærri skipum fylgir fjölbreyttari og flóknari búnaður og meiri áhersla á stjórnun.
Félag vélstjóra og málmtæknimanna
Námið
Vélstjórnarbrautir eru í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, Menntaskólanum á Ísafirði, Framhaldsskólann í A-Skaftafellssýslu (A - réttindi) og Verkmenntaskóla Austurlands (A og B réttindi), Tækniskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri (A – D réttindi).
Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.
Tengd störf