Flestir viðskiptafræðingar vinna sérfræði- eða stjórnendastörf sem tengjast rekstri fyrirtækja og stofnana. Störf viðskiptafræðinga geta snúið að flestu því sem að gagni getur komið í viðskiptum og má finna á flestum sviðum atvinnulífsins; við stofnun og rekstur fyrirtækja, fjármál, stefnumótun, sölu- og markaðsmál, framleiðslu og reikningshald. Viðskiptafræðingur er lögverndað starfsheiti.
Í starfi sem viðskiptafræðingur gætirðu hvort tveggja unnið innan einkageirans sem og hjá hinu opinbera.
Helstu verkefni
- rannsaka, greina og veita ráð um viðfangsefni á sviði viðskipta
- skipuleggja, fjármagna og kynna nýjar vörur og þjónustu
- sinna almannatengslum og upplýsingamiðlun
- kaupa, selja og veita ráðgjöf um verðbréf og erlenda gjaldmiðla
- gera úttekt á markaðsþróun fyrir viðskipti og fjárfestingar
- veita ráðgjöf um lánakjör og lánaskilyrði
- afla, greina og veita upplýsingar um fjármálamarkaðinn
Hæfnikröfur
Viðskiptafræðingar þurfa að kunna helstu kenningar og hugtök greinarinnar og þekkja undirstöðuatriði leitar- og upplýsingatækni. Gagnrýni og sjálfstæði í hugsun og vinnubrögðum eru góðir kostir í starfinu ásamt því að geta unnið skipulega og samkvæmt gefinni áætlun. Mikilvægt er að geta leitað eftir upplýsingum, greint þær og metið áreiðanleika þeirra og notkunargildi.
Félag viðskipta- og hagfræðinga
Námið
Viðskiptafræði er þriggja ára háskólanám sem lýkur með BS gráðu. Hún er kennd í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Bifröst.
Diplóma-, meistara- og doktorsnám er einnig í boði.
Tengd störf