Starf vöruþróunarstjóra snýr að þróun á vörum og þjónustu eftir ákveðnum verkferlum og stefnu viðkomandi fyrirtækis. Vöruþróunarstjóri vinnur þvert á deildir, ber ábyrgð á og stýrir teymisvinnu þar sem verkefni eru mótuð og áhættugreind áður en þau fara í framkvæmd og árangur þeirra að lokum metinn.
Áætlanagerð fer fram í samstarfi við yfirstjórn viðkomandi fyrirtækis en einnig snýst starfið mikið um samskipti við birgja og ýmsa samstarfs- og hagsmunaaðila.
Helstu verkefni
- greina markhópa og möguleg tækifæri
- tillögugerð að nýrri vöru
- skilgreina og forgangsraða verkefnum
- samræma vinnubrögð og upplýsingagjöf
- mat á samkeppni, innanlands og erlendis
- árangursmælingar
Hæfnikröfur
Í starfi vöruþróunarstjóra er afar mikilvægt að þekkja markaðinn og sviðið sem starfað er á auk góðrar yfirsýnar yfir verkefnastöðu hverju sinni. Mikilvægt er að geta fylgt skilgreindum ferlum, tímaskipulagi verkefna og unnið sjálfstætt.
Námið
Ýmiss konar nám á háskólastigi getur verið góður undirbúningur svo sem tengt nýsköpun og viðskiptaþróun (HÍ), vöruhönnun (LHI) eða iðnmeistararéttindi svo dæmi séu tekin.
Tengd störf