NÁM

Klæðskurður

Klæðskurður er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni við sérsaum, sníðagerð og aðra fagvinnu sem tengist herrafatnaði.

Klæðskurður er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kennsla

Námið hefur verið kennt við Tækniskólann – skóla atvinnulífsins.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skólans.

Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Klæðskeranám skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Fyrstu tvær annirnar taka nemendur grunnnám fataiðna og ljúka á næstu tveimur fatatækni, sem er alls tveggja ára starfsnám, en sérhæfa sig eftir það í klæðskurði. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Klæðskeri
Búningagerðarmaður
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf