Lögreglufræði er starfstengt nám á háskólastigi. Í náminu er fjallað um viðfangsefni löggæslu í víðu samhengi með það að markmiði að veita nemendum undirstöðufærni í að fyrirbyggja og upplýsa um brot á lögum og tryggja almennt öryggi.

Nám í lögreglufræði er kennt við Háskólann á Akureyri.
Umsækjendur þurfa að (sjá nánar):
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms, fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Nám fyrir verðandi lögregluþjóna er 120 eininga, tveggja ára diplómanám. Einnig er hægt að ljúka 180 eininga BA námi auk náms fyrir starfandi lögregluþjóna.
Áhersla er á sveigjanlegt nám, staðarnám og fjarnám. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu annast starfsnám nema í lögreglufræði í samstarfi við Háskólann á Akureyri.
Nám í lögreglufræðum undirbýr nemendur til starfa við löggæslustörf en gefur einnig kost á ýmis konar sérhæfingu, svo sem sérsveitarstörf, stjórnun lögregluembætta eða alþjóðlegt hjálpar- og þróunarstarf.