Matreiðsla er nám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að auka þekkingu og færni við meðferð matvæla, matreiðslu hvers konar sem og hollustu, nýjungar og fjölbreytni henni tengdri. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Matreiðsla er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðu skólans.
Námið hefur að hluta til verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar matreiðslu og starfsþjálfun. Fyrsta árið er farið í grunnnám í matvæla- og veitingagreinum en eftir það tekur við meiri sérhæfing. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Kennsla

Nám í matreiðslu fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi en matvælanám er einnig í boði við Verkmenntaskólann á Akureyri og grunnnám matvæla- og ferðagreina er kennt við Fjölbrautaskóla Suðurlands, ætlað nemendum sem stefna á vinnu við ferðaþjónustu eða  frekara nám í matvælagreinum.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika