Matsveinanám er starfsnám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að auka þekkingu og færni við dagleg störf sem matsveinn í litlum mötuneytum og á fiski- og flutningaskipum. Nemendur læra að setja saman matseðla, huga að innkaupum, ólíkar matreiðsluaðferðir og –hefðir ásamt meðferð matvæla. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Meðalnámstími er um eitt ár, tvær annir í skóla og starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.