Pípulagnir eru starfstengt nám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að auka færni og þekkingu til að leggja hita-, neysluvatns- og frárennsliskerfi í byggingar og mannvirki, veitukerfi fyrir vatns- og hitaveitur og frárennslislagnir utanhúss. Jafnframt að þekkja til uppsetningar tækja og búnaðar sem tengjast og stýra þessum kerfum og sjá um viðhald og endurnýjun. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Pípulagnir er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.