Sjávarútvegsfræði er grunnnám á háskólastigi. Námið byggir á raun- og viðskiptagreinum með áherslu á sérnámskeið sjávarútvegs. Fjallað er um vistkerfi sjávar, veiðar, vinnslu sjávarafurða og stjórnun í sjávarútvegi. Er náminu ætlað að bæta stjórnun auðlinda og ýta undir sjálfbæra nýtingu þeirra ásamt aukinni verðmætasköpun.
Náminu lýkur með BS prófi. Námstími er þrjú ár.