Aðstoðarmaður í málmiðnaði hjálpar til við nýsmíði, uppsetningu, viðgerðir og viðhald stálvirkja auk smíði, viðhalds og viðgerða á vélbúnaði. Aðallega er um að ræða einfaldari viðhaldsverkefni auk lagerhalds, sendiferða og samskipta við viðskiptavini.
Alla jafna er unnið undir leiðsögn faglærðra verkstjóra og iðnaðarmanna en einnig sjálfstætt við afmörkuð verkefni sem tengjast sérþekkingu viðkomandi starfsmanns. Vinnuaðstæður eru með ýmsum hætti, inni og úti, jafnvel við misjöfn loftgæði og getur starfið verið líkamlega krefjandi.