Aðstoðarfólk í verslunum sinnir vel afmörkuðum verkefnum undir stjórn deildar- eða verslunarstjóra. Alla jafna er unnið eftir skýrum verklagsreglum, oft til aðstoðar öðru starfsfólki verslunarinnar.
Aðstoðarfólk í verslunum sinnir vel afmörkuðum verkefnum undir stjórn deildar- eða verslunarstjóra. Alla jafna er unnið eftir skýrum verklagsreglum, oft til aðstoðar öðru starfsfólki verslunarinnar.
Í starfi aðstoðarmanns í verslun þarf að búa yfir grunnþekkingu á helstu vörutegundum sem í boði eru og geta unnið eftir leiðsögn annarra. Mikilvægt er að þekkja starfs- og öryggisreglur vinnustaðarins, geta tekið við og miðlað upplýsingum og komið fram við viðskiptavini af jákvæðni og þjónustulund.
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám hefur verið í boði á vegum Mímis – símenntunar. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er heimilt að fá námið metið til allt að 51 framhaldsskólaeininga.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi