STARF

Byggingafræðingur

Byggingafræðingar vinna við hönnun húsa og annarra mannvirkja, skipuleggja eða stjórna byggingaframkvæmdum ásamt því að sinna eftirliti og veita faglega ráðgjöf.

Í starfi byggingafræðings vinnurðu mikið með arkitektum, verkfræðingum, tæknifræðingum, iðnaðarmönnum og öðru starfsfólk í byggingariðnaði. Byggingarfræðingar starfa víða; sem hönnuðir, verkefnastjórar eða gæðastjórar á arkitekta- og verkfræðistofum, á teiknistofum, hjá tryggingarfélögum eða hjá fyrirtækjum í byggingariðnaði.

Helstu verkefni
  • meta kostnað við viðgerðir og viðhald
  • gerð útboðs- og tilboðsgagna
  • samningar við verktaka og val á efni
  • samhæfa burðarþol og lagnir kröfum um eldvarnir, hljóðeinangrun og fleira
  • endurgerð og endurbætur á gömlum húsum
Hæfnikröfur

Byggingafræðingur þarf að búa yfir nákvæmni í vinnubrögðum og skipulagshæfni. Í starfinu eru notuð ýmis hönnunar- og reikniforrit ásamt verkfærum til þess að meta ástand húsa. Áhugi á arkitektúr og hæfni í mannlegum samskiptum er einnig kostur.

Byggingafræðingafélag Íslands

Námið

Byggingafræði til BSc gráðu er þriggja til fjögurra ára nám við Háskólann í Reykjavík, að hluta til kennt í fjarnámi.

Byggingafræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Arkítekt

Byggingaverkamaður

Húsasmiður

Húsgagnabólstrari

Innanhúsarkitekt

Landslagsarkitekt

Málari

Ræstitæknir

Náms- og starfsráðgjöf