STARF

Hótelþerna

Hótelþerna sér um að herbergi hótels séu hrein, í röð og reglu og tilbúin fyrir gesti. Hótelþerna sér einnig um þrif á herbergjum meðan á dvöl stendur. Yfirleitt er um vaktavinnu að ræða og útvegar vinnuveitandi oftast vinnufatnað.

Helstu verkefni

• skipta um sængurver, lök og handklæði
• búa um rúm
• ryksuga gólf og teppi
• þurrka af og þrífa húsgögn
• fylla á sápur, sjampó og aðrar vörur sem eru í boði hótelsins
• fylla á smá-bar herbergis

Hæfnikröfur

Hótelþerna þarf að geta unnið hratt og af nákvæmni og hafa metnað til að aðkoma gesta að herberginu sé sem ánægjulegust.  Hótelþerna þarf einnig að vera áreiðanleg, heiðarleg og bera virðingu fyrir einkalífi fólks.  Æskilegt er að vera í góðu líkamlegu formi þar sem starfið reynir nokkuð á slíka þætti.

Ferðamálastofa

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Ekki er gerð formleg krafa um menntun en ýmis starfstengd námskeið kunna að vera í boði.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Ferðaþjónn

Flotastjóri

Flugumferðarstjóri

Flugvirki

Hlaðmaður

Hópferðabílstjóri

Landfræðingur

Ræstitæknir

Náms- og starfsráðgjöf