Landverðir vinna fyrst og fremst yfir sumarmánuðina við móttöku gesta á friðlýstum svæðum. Í starfinu felst að veita upplýsingar um náttúru, staðhætti, sögu, tjaldsvæði, gönguleiðir, akvegi og annað sem ferðamenn vilja vita.

Helstu verkefni
  • fræðsla um náttúru viðkomandi svæðis
  • eftirlit með umferð og umgengni fólks
  • merking, lagning og viðhald göngustíga
  • aðstoð og fyrsta hjálp ef slys ber að höndum
Hæfnikröfur

Í starfi sem landvörður er áhugi á náttúru og náttúruvernd mikill kostur ásamt þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Mikilvægt er að þekkja til umhverfismála, náttúruverndar, menningar og nærsamfélags, búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu auk verklagni og þekkingar á skyndihjálp.

Landvarðafélag Íslands

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Til að fá réttindi sem landvörður þarf að ljúka námskeiði í náttúruvernd og landvörslu sem Umhverfisstofnun stendur að ár hvert. Þurfa þátttakendur að vera orðnir 20 ára, með stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun eða reynslu. Á námskeiðunum er megináhersla lögð á:

  • Ísland – náttúrufar og þjóðlíf
  • Náttúruvernd
  • Umhverfisrétt
  • Dagleg störf við landvörslu
  • Umhverfisfræðslu

 

Landvarðarréttindi má einnig öðlast í diplómanámi í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Afbrotafræðingur

Barþjónn

Blómaskreytir

Búfræðingur

Dýralæknir

Fangavörður

Ferðaþjónn

Fiskeldisfræðingur

Náms- og starfsráðgjöf