Lögfræðingar sinna ýmiss konar lögfræðilegri ráðgjöf. Í starfi lögmanna felst meðal annars að annast meðferð mála fyrir hönd skjólstæðinga svo sem innheimtu-, skilnaðar-, eða skaðabótamála, skipti dánarbúa, stjórn þrotabúa eða sáttaumleitanir. Héraðsdóms- og hæstaréttarlögmenn hafa einkarétt til að annast málflutning fyrir dómstólum.
Sem lögfræðingur gætirðu hvort tveggja unnið á opinberum vettvangi og hjá einkafyrirtækjum. Lögfræðinga er víða að finna, til dæmis við lögmanna- og dómarastörf, í ráðuneytum og opinberum stofnunum, hjá fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum eða sem stjórnendur fyrirtækja svo dæmi séu tekin.