Þroskaþjálfar starfa við að styðja og gæta hagsmuna fatlaðs fólks ásamt því að efla þátttöku þeirra í samfélaginu. Í starfinu felst að þjálfa líkamlega og andlega fatlaða einstaklinga í átt til sjálfsbjargar og aukins alhliða þroska, veita þeim umönnun og leitast við að auka færni þeirra í daglegu lífi. Þroskaþjálfar eru löggilt heilbrigðisstétt.
Þroskaþjálfar hafa oft náið samráð við foreldra, lækna, kennara og aðra sérfræðinga og endurmeta markmið með hliðsjón af umsögnum þeirra. Í starfi þroskaþjálfa gætirðu starfað víða í samfélaginu svo sem í skólum, á dagvistun barna, sambýlum, öldrunarstofnunum eða á stofnunum fyrir fatlaða.