STARF

Viðskiptafræðingur

Flestir viðskiptafræðingar vinna sérfræði- eða stjórnendastörf sem tengjast rekstri fyrirtækja og stofnana. Störf viðskiptafræðinga geta snúið að flestu því sem að gagni getur komið í viðskiptum og má finna á flestum sviðum atvinnulífsins; við stofnun og rekstur fyrirtækja, fjármál, stefnumótun, sölu- og markaðsmál, framleiðslu og reikningshald. Viðskiptafræðingur er lögverndað starfsheiti.

Í starfi sem viðskiptafræðingur gætirðu hvort tveggja unnið innan einkageirans sem og hjá hinu opinbera.

Helstu verkefni
  • rannsaka, greina og veita ráð um viðfangsefni á sviði viðskipta
  • skipuleggja, fjármagna og kynna nýjar vörur og þjónustu
  • sinna almannatengslum og upplýsingamiðlun
  • kaupa, selja og veita ráðgjöf um verðbréf og erlenda gjaldmiðla
  • gera úttekt á markaðsþróun fyrir viðskipti og fjárfestingar
  • veita ráðgjöf um lánakjör og lánaskilyrði
  • afla, greina og veita upplýsingar um fjármálamarkaðinn
Hæfnikröfur

Viðskiptafræðingar þurfa að kunna helstu kenningar og hugtök greinarinnar og þekkja undirstöðuatriði leitar- og upplýsingatækni. Gagnrýni og sjálfstæði í hugsun og vinnubrögðum eru góðir kostir í starfinu ásamt því að geta unnið skipulega og samkvæmt gefinni áætlun. Mikilvægt er að geta leitað eftir upplýsingum, greint þær og metið áreiðanleika þeirra og notkunargildi.

Félag viðskipta- og hagfræðinga

 
Námið

Viðskiptafræði er þriggja ára háskólanám sem lýkur með BS gráðu. Hún er kennd í Háskóla ÍslandsHáskólanum í ReykjavíkHáskólanum á Akureyri og Háskólanum á Bifröst. Diplóma-, meistara- og doktorsnám er einnig í boði.

Viðskiptafræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Tryggingaráðgjafi

Bókari

Tölfræðingur

Bréfberi

Gæðastjóri

Fjármálastjóri

Skrifstofufulltrúi

Verkefnastjóri

Náms- og starfsráðgjöf