Blómaskreytingar er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Námið veitir nemendum undirstöðuþekkingu í störfum sem lúta að blómaskreytingum sem notaðar eru við margvísleg tækifæri og þeim kennt að þekkja og vinna með algengustu stílbrigði. Nemendur fá innsýn í rekstur blómaverslana og læra að setja fram vörur í verslunum. Auk þess er kennd meðferð afskorinna blóma og algengustu pottaplantna.
Meðalnámstími er þrjú ár að meðtöldu 60 vikna verknámi.
Kröfur
Umsækjandi þarf að hafa lokið þremur til fjórum önnum í framhaldsskóla og vera orðinn 18 ára. Einnig er heimilt að taka inn nemendur sem orðnir eru 25 ára og hafa reynslu úr viðkomandi faggrein, en eru ekki með formlega menntun á framhaldsskólastigi. Heimilt er að meta reynslu úr atvinnulífi til hluta fornáms á framhaldsskólastigi og er það skoðað í hverju tilviki fyrir sig.
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hafi lokið 12 vikna verknámi á verknámsstað sem skólinn viðurkennir, áður en nám við skólann hefst.
Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.
Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Námið skiptist í fjórar annir auk 60 vikna verknáms og verður frá hausti 2022 kennt á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands en áfram í húsnæði Landbúnaðarháskólans að Reykjum í Ölfusi.
Verknám fer fram undir handleiðslu verknámskennara á viðurkenndum verknámsstað.
Kennsla
Blómaskreytinganám er kennt á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands að Reykjum í Ölfusi.
Að loknu námi
Að námi loknu fá nemendur starfsheitið garðyrkjufræðingur af blómaskreytingabraut eða blómaskreytir.
Tengt nám