Búfræði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Náminu er meðal annars ætlað að auka færni og þekkingu nemenda á búrekstri. Námsgreinar skiptast í megin atriðum í búfjárrækt, einkum nautgriparækt og sauðfjárrækt, jarðræktargreinar, svo sem áburðarfræði og nytjajurtir, bútæknigreinar á borð við búvélafræði og búsmíði ásamt hagfræðigreinum eins og bókhald og bústjórn.
Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Meðalnámstími er tvö ár að meðtalinni 12 vikna námsdvöl á kennslubúi.
Kröfur
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Grunnskólapróf ásamt að minnsta kosti einu námsári í framhaldsskóla. Undantekning hugsanleg fyrir 24 ára og eldri með mikla starfsreynslu
- Reynsla af landbúnaðarstörfum
Námið hefur verið lánshæft hjá hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Námið skiptist á eftirfarandi hátt:
Hefst með tveimur önnum í skólanum. Bóklegt og að nokkru verklegt nám.
Námsdvöl frá aprílbyrjun fram yfir miðjan júní. Verkleg þjálfun í bústörfum ásamt verkefnavinnu.
Seinna árið eru nemendur í bóklegum og verklegum fögum í skólanum.
Námsdvölin fer fram á kennslubúum sem Landbúnaðarháskóli Íslands hefur samstarfssamning við.
Einnig hefur verið í boði fjarnám í búfræði en er einungis ætlað starfandi bændum sem náð hafa 25 ára aldri.
Kennsla
Búfræðinámið er kennt við Landbúnaðarháskóla Íslands sem hefur verið í samvinnu við framhaldsskóla á borð við Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Menntaskóla Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Að loknu námi
Að námi loknu geta nemendur unnið margvísleg störf tengd landbúnaði. Eins er námið góður undirbúningur til framhaldsnáms innan umhverfis- og náttúruvísinda, búvísinda eða dýralækninga.
Tengt nám