Fatatækni er starfsnám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst meðal annars að veita þekkingu og færni til að starfa sem fatatæknar við saumaskap og ýmsa þjónustu tengda fatnaði og tísku. Námið er einnig undirstöðumenntun fyrir áframhaldandi sérnám í fataiðngreinum.
Meðalnámstími er rúm tvö ár að meðtalinni átta vikna starfsþjálfun.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Sjá nánar á heimasíðu skólans.
Upplýsingar um lánshæfi námsins má fá hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Fatatækni skiptist í almennar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Bóklega námið er fjórar annir.
Kennsla
Fatatækni er kennd í Tækniskólanum.
Að loknu námi
Fatatækni er undanfari sérnáms í kjólasaumi og klæðskurði og gæti hentað fyrir hvers konar fatahönnunarnám.
Tengt nám