Vélvirkjun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka þekkingu og færni á uppbyggingu, vinnsluferli og viðhaldi véla, kælikerfa og loftstýringa. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Vélvirkjun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú ár auk starfsþjálfunar þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.
Námið hefur verið lánshæft til framfærsluláns og annarra lána hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Vélvirkjun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.
Fyrstu tvö árin er farið í sameiginlegt grunnnám málmiðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í vélvirkjun. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.
Fjölbrautaskóli Vesturlands hefur boðið upp á vélvirkjanám með vinnu en sú krafa gerð að umsækjandi hafi náð 23 ára aldri og nokkra starfsreynslu sem metin er til styttingar á náminu.
Kennsla
Nám í vélvirkjun hefur verið kennt í Borgarholtsskóla, Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, Fjölbrautarskóla Suðurlands, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, Tækniskólann, Verkmenntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskóla Austurlands.
Grunnnám málmiðngreina hefur einnig verið kennt við Fjölbrautaskólann á Suðurnesjum og Menntaskólann á Ísafirði.
Að loknu námi
Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.
Tengt nám