Vélstjórn er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Meginmarkmið námsins er að nemendur verði færir um að hafa stjórn á og geti viðhaldið vélbúnaði skipa eða framleiðslufyrirtækja. Í náminu afla nemendur sér færni í notkun hvers konar vél-, raf- og stjórnbúnaðar sem unnið er með og þekkingar á lögum og reglum sem vélstjórar vinna eftir. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Vélstjórn er löggilt starf. Námstími í skóla er fimm ár, þar við bætist sveinspróf og siglingatími til að öðlast fyllstu vélstjórnarréttindi. Þar að auki sækja nemendur námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla, sjá nánar á heimasíðum skóla.
Námið er lánshæft til framfærsluláns og annarra lána hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Nám í vélstjórn skiptist í almennar bóklegar greinar og sérgreinar vélstjórnarinnar. Það er þrepaskipt og geta nemendur fengið réttindi að loknu hverju stigi, frá A til D. Fyrstu tvær annirnar er farið í grunnnám málmiðngreina.
Til að öðlast fyllstu vélstjórnarréttindi þarf nemandi að hafa lokið D-réttindanámi og 24-36 mánaða siglingatíma og viðurkenndri verkstæðisþjálfun samkvæmt viðeigandi lögum og reglugerð.
Véltækniskóli Tækniskólans býður upp á menntun til VA réttinda í dreifnámi.
Kennsla
Nám til fullra vélstjórnarréttinda (VD) er kennt við Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Aðrir skólar sem bjóða upp á vélstjórnarnám (A-B) eru Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Menntaskólinn á Ísafirði og Verkmenntaskóli Austurlands.
Að loknu námi
Að loknu VC námi og tilskildum námssamningi hafa nemendur rétt til að fara í sveinspróf í vélvirkjun. Samhliða útskrift sem vélfræðingar (VD) útskrifast nemendur sem stúdentar.
Tengt nám