Klæðskeri starfar við sérsaum, búningasaum, sniðagerð og aðra fagvinnu sem tengist gerð herrafatnaðar. Í starfinu felst einnig að veita viðskiptavinum ráðgjöf og þjónustu við að teikna, útfæra og sérsauma fatnað. Klæðskerar sérhæfa sig stundum í gerð fatnaðar úr þyngri efnum og vinna gjarnan með stöðluð snið. Klæðskurður er löggilt iðngrein.
Sem klæðskeri gætirðu starfað í fataverksmiðju, á saumastofu eða á eigin verkstæði. Klæðskerar stjórna oft framleiðslu, sinna verkstjórn eða hafa faglega umsjón í störfum sínum.

Helstu verkefni

- útfæra eigin hugmyndir eða viðskiptavina
- velja efni til að vinna með
- annast innkaup á efnum og öðrum vörum sem þarf á saumastofu
- taka mál, teikna, útfæra snið og breyta fötum eða sérsauma
- stækka og minnka snið og/eða föt

Hæfnikröfur

Í starfi klæðskera er mikilvægt að þekkja helstu eiginleika og kosti efna sem notuð eru í klæðskurði, hafa áhuga á hönnun og saumaskap og hafa vald á mismunandi saumatækni. Klæðskeri þarf að hafa góð tök á notkun tækja og áhalda og geta notað tölvutækni við hugmyndaþróun.

Námið

Klæðskurður er fjögurra ára nám á framhaldsskólastigi og er kennt í Tækniskólanum.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika