Ljósamaður vinnur að uppsetningu ljósa og daglegum rekstri þeirra. Í starfinu felst að stýra kösturum, til dæmis eltiljósum, og/eða stýra ljósaborði á margs konar viðburðum.

Ljósamenn vinna í samstarfi við ljósameistara, ljósahönnuði og sýningarstjóra. Oft er um að ræða vaktavinnu og er mikil viðvera í kringum viðburði á borð við leiksýningar.

Helstu verkefni

- stýra kösturum og framkvæma ljósabreytingar
- sinna daglegri vinnu við framkvæmd lýsingar á viðburðum
- hengja upp, tengja og stilla kastara
- sjá um stillingar á ljósum og tilfærslu þeirra á æfingum
- stýra ljósaborði á sýningum í samvinnu við sýningarstjóra

Hæfnikröfur

Ljósamaður þarf að hafa áhuga á tækni og rafmagni. Mikilvægt er að geta unnið í teymi með öðrum. Ljósamenn vinna með ljóskastara af ýmsum stærðum og gerðum, tölvur og ljósaborð og getur vinnan á köflum reynt á líkamlega.

Rafmennt

Námið

Ekki er krafist sérstakrar menntunar í starfi ljósamanns en ýmis starfstengd námskeið kunna að vera í boði.

Einnig má benda á nám í rafvirkjun en grunn- og framhaldsnám í rafiðngreinum má finna við marga framhaldsskóla.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika