Tölvuleikir eru yfirleitt búnir til í samvinnu margra aðila með mismunandi sérþekkingu á sviði forritunar og hönnunar. Hlutverk hönnuðarins er að lýsa og miðla hugmyndum sem orðið geta að veruleika í leiknum sjálfum. Leikjahönnunin liggur því á mörkum tækni- og listvinnu auk þess að tengjast greiningu á því hvers konar leikjum notendur kalla eftir.

Starfsumhverfi leikjahönnuða er alla jafna innan afþreyingariðnaðarins. Þar sem tölvuleikjaiðnaðurinn einn og sér hefur verið mjög vaxandi (og er orðinn á pari við kvikmyndaiðnað á heimsvísu) eru ýmsir möguleikar á alþjóðlegum markaði þó íslenski markaðurinn sé eðlilega smár.

Helstu verkefni

- þarfagreining – hvernig tölvuleiki vantar?
- hugmyndavinna
- leikjaþróun í samvinnu við forritara og hönnuði

Hæfnikröfur

Leikjahönnuður þarf að vera hugmyndaríkur, skapandi og hafa áhuga á tölvum og tækni auk hæfileika til að greina hluti og miðla þeim áfram. Hæfni til að leysa vandamál er mikilvæg sem og áhugi á gerð tölvuleikja og leikjaupplifun spilarans. Leikjahönnuður þarf bæði að geta unnið sjálfstætt og í hópi með öðrum.

Að hluta byggt á Utdanning.no - Spilldesigner

Námið

Bakgrunnur leikjahönnuða getur verið afar fjölbreyttur. Margir eru sjálfmenntaðir eða með einhvers konar tæknimenntun á framhalds- eða háskólastigi.

Í erlendum skólum er einnig boðið upp á sérhæft nám innan leikjahönnunar.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika