Osteópatar greina og meðhöndla líkamleg vandamál í gegnum vöðva- og liðkerfi líkamans með því að vega og meta hreyfanleika og virkni liðamóta og vöðva. Osteópatar meðhöndla svo til einungis með því að beita höndum á liðamót og mjúkvefi. Dæmi um vandamál sem osteópatar hjálpa til við eru bak- og háls- og giktarverkir, brjósklos, stífleiki í liðamótum og íþróttameiðsl. Osteópatar eru löggilt heilbrigðisstétt.
Helstu verkefni
- greining byggð á sjúkrasögu og þróun viðkomandi vandamáls
- framkvæmd bæklunar- og hreyfifræðilegra prófa
- meðhöndlun; nudd, liðteygjur, vefja- og vöðvameðferð og hnykkingar
- ráðgjöf um æfingar og breytingar á starfsháttum ef við á
Hæfnikröfur
Osteópatar fá starfsleyfi frá landlækni og er krafist að lágmarki fjögurra ára bóklegs og verklegs náms til BS – prófs í osteópatíu. Osteópati þarf að þekkja vel þau lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og geta borið ábyrgð á þeirri meðferð sem veitt er. Í starfi osteópata er mikilvægt að þekkja siðareglur stéttarinnar, virða faglegar takmarkanir sem og þagnarskyldu þegar við á.
Tengd störf