Stöðuverðir hafa eftirlit með gjaldskyldum bílastæðum og leggja gjald á þau ökutæki sem ekki hafa greitt fyrir bílastæði. Einnig hafa stöðuverðir eftirlit með ökutækjum sem leggja ólöglega og sinna eftirliti með virkni gjaldmæla.
Í starfi sem stöðuvörður ertu í miklum samskiptum við almenning, aðra bæjarstarfsmenn og samstarfsfólk. Stöðuvörður fylgir eftir fyrirmælum frá yfirmönnum á skrifstofu.
Helstu verkefni
- eftirlit með bílastæðum og svæðum
- leggja á ökutæki aukastöðugjald og/eða gjald fyrir stöðubrot með þar til gerðum búnaði
- taka við ábendingum í sambandi við bílastæði og merkingar
Hæfnikröfur
Stöðuvörður þarf að hafa til að bera góða þekkingu og skilning á umferðarlögum, góða íslensku- og enskukunnáttu og grunnþekkingu á tölvur. Stöðuverðir þurfa að búa yfir mikilli þjónustulund, þolinmæði og samskiptahæfni auk þess að vera í góðu líkamlegu ástandi. Þurfa að geta unnið hvort tveggja sjálfstætt og í hópi.
Tengd störf