Nám á hestabraut er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í því er farið í grunnþætti hestamennsku og eru nemendur undirbúnir fyrir hvers konar hestatengda starfsemi, svo sem á hestabúgörðum, við hestatengda ferðaþjónustu eða hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum. Eftir námið eiga nemendur að geta sinnt helstu verkþáttum í hirðingu hesta og aðstoðað við þjálfun þeirra. Einnig aðstoðað viðskiptavini í hestaferðum hjá hestatengdum ferðaþjónustufyrirtækjum.
Raunfærnimat hefur farið fram í greininni þar sem færni af vinnumarkaði er metin.
Meðalnámstími er um þrjú ár að meðtalinni 12 vikna starfsþjálfun.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Athugaðu hvort námið gæti verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms, fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Námið skiptist í almennar greinar, sérgreinar brautarinnar og starfsþjálfun. Starfsþjálfunin fer fram á sumrin í lok fyrsta og annars árs. Athugaðu að námið eða hluti þess gæti verið kennt í fjarnámi.
Kennsla
Nám á hestabrautum hefur verið kennt við Fjölbrautaskóla Suðurlands og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra auk hestakjörsviðs á opinni stúdentsbraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ.
Einnig hefur verið boðið upp á styttra nám til að auka eigin færni í ferðaþjónustu hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum þar sem fá má nánari upplýsingar.
Á háskólastigi er nám í hestafræði til BS - gráðu, bæði við Landbúnaðarháskólann og Háskólann á Hólum.
Að loknu námi
Möguleiki er að vinna við ýmis störf tengdum hestum og ferðaþjónustu. Eins er hægt að fá hluta námsins metinn fyrir nám til stúdentsprófs af bóknámsbraut.
Tengt nám