Lögfræði er nám á háskólastigi. Í náminu er fjallað um undirstöðuatriði lögfræðinnar, lagaframkvæmd, framsetningu lögfræðilegra viðfangsefna og fræðileg álitamál.

Til að öðlast starfsheitið lögfræðingur þarf að ljúka meistaranámi.

Grunnnámi lýkur með BA/BS gráðu – námstími er þrjú ár.

Meistaranám til fullnaðarprófs tekur tvö ár.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Áherslumunur getur verið á námsskipulagi í lögfræði á milli skólanna og best að kynna sér það á heimasvæðum brautanna.

Kennsla

Lögfræði er kennd við fjóra íslenska háskóla:
 

Háskólinn á Akureyri – grunnnám til BA – gráðu og framhaldsnám til meistaraprófs.

 

Háskólinn á Bifröst – grunnnám til BS – gráðu í viðskiptalögfræði. Einnig í boði tveggja ára meistaranám og þriggja anna diplóma.

 

Háskóli Íslands - grunnnám til BA – gráðu og framhaldsnám til meistaraprófs.

 

Háskólinn í Reykjavík - grunnnám til BA – gráðu og framhaldsnám til meistaraprófs.

Að loknu námi

Að loknu meistaraprófi má titla sig lögfræðing og sækja um lögmannsréttindi til að verja mál fyrir dómstólum.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika