Nám viðurkennds bókara tengist bókhaldi, launakerfum, reiknings- og skattskilum og notkun upplýsingatækni í slíkum verkefnum.
Kröfur
Inntökuskilyrði í nám til viðurkennds bókara geta verið nokkuð mismunandi og best að kynna sér það á heimasvæði viðkomandi námsbrautar.
Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Áherslumunur er á skipulagi náms bókara milli þeirra fræðsluaðila sem bjóða upp á slíkt nám. Sjá nánar á heimasvæðum viðkomandi námsleiða; Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn - Promennt - Endurmenntun Háskóla Íslands - Opni háskóli HR.
Kennsla
Nám til viðurkennds bókara er kennt hjá NTV og Promennt. Einnig hafa Endurmenntun HÍ og Opni háskóli HR boðið upp á námskeið og námsleiðir fyrir lokahlutann að gráðu til viðurkennds bókara.
Að loknu námi
Til að öðlast gráðu sem „Viðurkenndur bókari“ þarf að þreyta próf sem haldin eru á haustin á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Tengt nám