Fangavarðanám er starfstengt og felst meðal annars í að efla þekkingu í almennum fangavarðafræðum, starfsemi fangelsa, starfi fangavarða og fullnustu refsinga.
Meðalnámstími er innan við eitt ár að meðtalinni 12 vikna starfsþjálfun.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að:
- vera á aldrinum 20-45 ára og mega ekki hafa gerst brotlegir við refsilög.
- vera andlega og líkamlega heilbrigðir.
- hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára almennu framhaldsnámi eða sambærilegu námi.
Athugaðu hvort námið gæti verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms, fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Nám í fangavörslu skiptist í grunnám, starfsþjálfun og framhaldsnám.
Kennsla
Fangavarðanám hefur verið kennt við Fangavarðaskóla ríkisins sem heyrir undir Fangelsismálastofnun.
Að loknu námi
Hægt er að starfa sem fangavörður að loknu námi.
Tengt nám