Félagsliðanám er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu er farið yfir þá þjónustu sem félagsliðar veita í formi aðstoðar og umönnunar við aldraða, fatlað fólk á öllum aldri sem og þá sem glíma við geðraskanir. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Meðalnámstími er þrjú ár með vinnustaðanámi og starfsþjálfun.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Undantekningar frá því geta þó verið hjá einstaka skólum.

Í boði er nám á félagsliðabrú en hún er til að auðvelda ófaglærðu fólki með starfsreynslu að öðlast starfsréttindi. Skilyrði eru að umsækjandi búi yfir að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu og hafi  lokið starfstengdum námskeiðum.

Námið hefur að hluta til verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í sameiginlegar greinar þjónustubrauta, sérgreinar félagsliðabrautar og vinnustaðanám. Nemendur geta sérhæft sig á sviði fötlunar eða öldrunarþjónustu.

Félagsliðagátt er einnig í boði á vegum símenntunarmiðstöðva þar sem farið er í sérgreinar brautarinnar. Félagsliðagáttin er undirbúningur fyrir nám félagsliða á þriðja þrepi, alls 1720 klukkustundir og samsvarar 86 framhaldsskólaeiningum. Það nám er fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði með um þriggja ára starfsreynslu að lágmarki.

Kennsla

Félagsliðanám hefur verið kennt við Borgarholtsskóla. Það er einnig í boði við Fjölbrautaskóla Vesturlands auk þess sem Menntaskólinn á Egilsstöðum og Verkmenntaskólinn á Akureyri hyggja á slíkt sem fjarnám.

Félagsliðabrú getur verið í boði við skólana þar sem félagsliðanám er kennt sem og hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum.

Að loknu námi

Að námi loknu er hægt að starfa sem félagsliði.

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika