Fisktækni er nám á framhaldsskólastigi til undirbúnings störfum í fiskvinnslu, við fiskveiðar og fiskeldi. Raunfærnimat hefur farið fram í greininni.
Meðalnámstími er tvö ár að meðtalinni tveggja anna starfsþjálfun.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla.
Athugaðu hvort námið er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Fisktækni skiptist í almennar greinar, sérgreinar, vinnustaðanám og starfsþjálfun þar sem önnur og fjórða önnin fara fram á vinnustað. Hægt er að taka námskeið í stjórnun vinnuvéla og fá metið sem hluta vinnustaðanáms. Nemendur sem hyggja eingöngu á vinnu í fiskvinnslu eða önnur störf í landi, geta valið áfanga í fiskeldi, rekstur fiskvinnslu eða frumkvöðlafræði sjávarútvegs í stað smáskipanáms og vélgæslu.
Á námstíma er farið í heimsóknir í stofnarnir og fyrirtæki tengd sjávarútvegi auk tveggja námsferða erlendis. Athugið að hluti námsins kann að vera í boði sem fjarnám eða í samstarfi við aðra skóla og símenntunarmiðstöðvar.
Kennsla
Nám í fisktækni hefur verið kennt við Fisktækniskóla Íslands.
Að loknu námi
Nám í fisktækni getur verið grunnur að frekara námi í sjávarútvegs- og matvælafræðum eða undirbúningur fyrir störf sem tengjast vinnslu sjávarafurða hjá fiskvinnslufyrirtækjum, útgerðum og fiskeldisstöðvum. Fisktæknar starfa einnig hjá fisksölufyrirtækjum eða við sölu tækja og búnaðs fyrir sjávarútveg.
Tengt nám