Geislafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á aðferðir geislafræðinnar til að skyggnast inn í mannslíkamann með myndgreiningu sem gegnir sífellt stærra hlutverki í greiningu og meðferð sjúkdóma. Fjallað er um röntgengeisla, segulsvið, útvarpsbylgjur, geislavirk efni, hljóðbylgjur og tölvutækni þar sem sjá má allt frá yfirborði stærri líffæra til starfsemi í frumum líkamans.
Í náminu er lagður grunnur að þekkingu á geislafræði auk undirbúnings fyrir réttindanám, áframhaldandi meistaranám eða starf sem geislafræðingur.
Grunnnámi lýkur með BS gráðu. Námstími er þrjú ár.
Námsvalshjól Háskóla Íslands
Kröfur
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám.
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
BS-nám í geislafræði er hvort tveggja fræðilegt og verklegt. Fyrsta árið er áhersla lögð á almenna þekkingu á mannslíkamanum en síðan eru sérhæfð námskeið og rannsóknir á borð við röntgen-, ísótópa-, tölvusneiðmynda-, æða- og segulóm-rannsóknir.
Kennsluaðferðir og námsmat er fjölbreytt þar sem fyrirlestrum, verkkennslu, einstaklingsverkefnum og hópvinnu er fléttað saman.
Kennsla
Nám í geislafræði hefur verið kennt innan Læknadeildar Háskóla Íslands. Í boði er þriggja ára grunnnám til BS gráðu auk viðbótardiplómu til starfsréttinda og meistaranáms.
Að loknu námi
Að loknu BS-prófi og eins árs framhaldsnámi má öðlast starfsréttindi sem geislafræðingur. Ýmsir möguleikar til sérhæfingar eru í greininni og framhaldsnám í boði hvort tveggja hér á landi og erlendis.
Tengt nám