Hæfniþrep: 5
Guðfræði - embættisnám til prests picture

Guðfræði er grunnnám á háskólastigi og nám til embættisprófs framhaldsnám á háskólastigi. Meginmarkmið námsins er að nemendur kunni skil á rannsóknaraðferðum innan greina guðfræðinnar og geti gert greinarmun á ýmsum skýringum á guðfræðilegum álitamálum. Meðal annars er farið í sögulega þróun kristindómsins, trúfræði, kirkjusögu og praktíska guðfræði.

Náminu lýkur með BA prófi og Mag.Theol embættisprófi. Námstími er fimm ár.

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kröfur

Grunnnám (BA): Inntökuskilyrði eru stúdentspróf frá framhaldsskóla eða sambærileg menntun.
Framhaldsnám (Mag. Theol): Inntökuskilyrði eru BA próf í guðfræði með fyrstu einkunn.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nemendur sem stefna að embættisprófi ljúka þriggja ára BA prófi  þar sem samsetning námsins er bundin fræðasviðum guðfræðinnar og því engin valnámskeið tekin. Við tekur síðan tveggja ára meistaranám til embættisprófs.

 Fræðileg námskeið eru öll árin en lokaverkefni til Mag.Theol prófs unnið á lokaárinu.

Kennsla

Nám í guðfræði er kennt við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.

Að loknu námi

Eftir nám í guðfræði og að loknu embættisprófi geta kandidatar farið í starfsþjálfun á vegum Þjóðkirkjunnar og að fengnu embættisgengi frá biskupi er hægt að sækja um prestsembætti og starfa sem prestur.

Störf

Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika