Háskólagrunnur Háskólans í Reykjavík er ætlað fólki sem stefnir að háskólanámi en hefur ekki lokið stúdentsprófi eða vill bæta við slíkt próf einingum í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði.
Námið er sniðið að nemendum og miðað við það háskólanám sem stefnt er að í framhaldinu. Einnig í boði á Austurlandi, frá hausti 2021.
Kröfur
Valin er námsleið miðað við það nám sem stefnt er að í framhaldinu. Nám í háskólagrunni er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.
Námsskipulag
Námstími er eitt til tvö ár - blanda af hefðbundnu og stafrænu námi.
Kennsla
Kennt er í húsnæði Háskólans í Reykjavík og einnig á Austurlandi frá hausti 2021.
Að loknu námi
Samhliða námi í háskólagrunni gæti verið skynsamlegt að leita til náms- og starfsráðgjafa í sambandi við möguleika á frekara námi.
Tengt nám