Matsveinanám er starfsnám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að auka þekkingu og færni við dagleg störf sem matsveinn í litlum mötuneytum og á fiski- og flutningaskipum. Nemendur læra að setja saman matseðla, huga að innkaupum, ólíkar matreiðsluaðferðir og –hefðir ásamt meðferð matvæla. Möguleiki er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.
Meðalnámstími er um eitt ár, tvær annir í skóla og starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.
Kröfur
Umsækjendur þurfa að hafa lokið sex mánaða starfsþjálfun eða vera starfandi í mötuneyti sem býður upp á mat í hádegi og að kvöldi.
Upplýsingar um lánshæfi námsins má fá hjá Menntasjóði námsmanna. Eins veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Námsskipulag
Námið skiptist í sérgreinar og starfsþjálfun.
Kennsla
Matsveinanám er kennt í Menntaskólanum í Kópavogi en grunnnám matvæla einnig í boði við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Að loknu námi
Námið veitir réttindi til að starfa sem matsveinn.
Tengt nám